5.11.2008 | 15:43
Vonandi sést nú fyrir endann á vargöldinni í Írak
Barak Obama var kosinn forseti Bandaríkjanna í gær. Ég vona að honum takist að gera heiminn betri og ég vona að ill öfl komi ekki í veg fyrir það.
Stríðið í Írak hófst þann 20. mars 2003 með innrás bandalags viljugra þjóða með Bandaríkin og Bretland í broddi fylkingar. Skömmu fyrir þennan óheilladag var mikið kuldakast í Austur Evrópu og margir létu lífið í Moskvu vegna þess. Innrásin í Írak var yfirvofandi. Eftirfarandi vísur urðu þá til.
Kalt er við Kremlarmúra
króknar þar öreiginn
Auðvaldsins aum náttúra
öllu snýr hinseginn
Og bráðum fer Bush að stríða
og berjast við Saddams lið
Hrynur þá veröld víða
og vargöldin tekur við
Bestu kveðjur
Jörundur Garðarsson
Fyrrverandi löggiltur fiskmatsmaður
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.